þetta reddast...

Jóhanna

30.12.2006 17:11:07 / johanna

nýtt blogg

jamms ákvað að fylgja tískustraumnum og búa til nýtt blogg... ekki það að blog.central hafi valdið mér einhverjum vonbrigðum... langaði bara að prófa...

www.123.is/jonsdottir

:klikk::klikk::klikk::klikk::klikk::klikk:


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 21:41:20 / johanna

Ég krefst svara!!!

ný bloggfærsla verður ekki gerð fyrr en allavega 7-10 hafa svarað... þar með mun ég ekki blogga um velgengni prófa eða bara ekki neitt... :klikk:
(p.s. Þórdís ég á bara 3 vini svo verður að redda þessu 8) ) :haha:

1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Uppáhalds búð:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
12. Besta minningin þín um mig?
13. Myndir þú gefa mér nýra?
14. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
15. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
16. Getum við hist og bakað köku?
17. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
18. Talarðu eða hefurðu talað illa um mig?
19. Finnst þér ég vera góð manneskja?
20. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
21. Finnst þér ég vera aðlaðandi?
22. Hverju myndirðu vilja breyta í mínu fari?
23. Í hverju sefurðu?
24. Kæmirðu í heimsókn af tilefnislausu, bara til að hanga?
25. Ef við ættum einn dag ólifaðan, hvað myndum við gera?
26. Ætlarðu að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út? 


» 15 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 11:12:58 / johanna

Maslow paslow

Ákvað að taka mér smá pásu frá meðferðarsambandinu, Marslow og helth belive modelinu í smá stund og blogga fyrir hana þórdísi svo hún geti nú kommentað á nýjum stað 8) Frau Grünhildur var farin að angra hana eitthvað 8|

Allavega ég lærði eins og m.f. í gær svo ég gæti nú með góðri samviku verið klessa um kvöldið og horft á allt það skemmtilega sem T.V. hafði upp á að bjóða en það var nú ekkert slor, fyrst one tree hill en þar er nú allt að gerast... ein að deita kennara og Mouth loksins kominn á séns :haha:

Síðan var það survavior og ekki yfir neinu að kvarta þar, Jonathan rekin út alveg eins og við Ólöf vildu

Kvöldinu lauk svo með tvöföldum loka þætti af So you think you can dans og þar voru svo blóð sviti og tár á ferðinni... við Ólöf voru ekki alveg sáttar við úrslitin vildum að Travis inni enda var hann LANG flottastur en þetta var þó ásættanlegt þar sem hann var í 2. sæti og Benji vann, ég var nú búin að halda upp á hann frá þætti 1 svo... allavega á meðan gellurnar unnu ekki... enda þegar ég fer að hugsa út í það... þá held ég að Benji fitti betur inn í Dion-grúppuna ;) Any way....

hummm... já það varkverðasta er að það eru bara 2 próf eftir... og ég verða svo ánægð þegar þetta rugl er allt yfirstaðið.... ástandið er ekki orðið gott... ég er föl eins og draugir... reitt eins og hænu rass í vindi, komin með krippu líkt og þjónn drakúla, og komin með útþaninn nammi maga líkt og kona komin 7 mánuði... ástanið er ekki gott... og fer vesnandi :klikk:


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 11:54:26 / johanna

´Halelúja og allir hans eftirmenn

já þórdís... ég er opinberlaga hætt að blogg... nei það er ekki svo slæmmt... ólíkt öðrum þá er bara mikið að gera þessa dagana og það að blogga er ekki efst á listanum... þú veist vel að ég er lengi að borða :klikk:

En annars er sorglegt en satt þá eru prófin líf mitt þessa dagana og ég hef ekkert fréttnæmt að segja nema það að ég rendar ótrúlegt en satt náði VFR :haha: en hef nú ekki fengið út úr fleiri prófum, enda þurfti KK að skella sér á fund hjá Alkaíta svo hann komst ekki í það að fara yfir Heimspkiprófin strax (fjandans hriðjuverk...) 8|

Var reyndar að koma úr VOÞ prófi áðan, og jah... ég verð nú bara að tjá mig um það að mér fannst þetta próf ekkert spes... eiginlega mætti líkja því við svín... eða jafnvel pottaplönntu... enda er mér illa við þær þessa dagana, ég vil ekkert hafa mörg orð um kennarana... (enda eiga þeir eftir að fara yfir prófið) :haha:

Verð nú samt að skjóta því inn að ég gerði heiðarlega tilraun til að kaupa jólastjörnu á fimmtudaginn... en einhver æðri völd komu í veg fyrir þau kaup!!! ég er ekki að skrökva... ég lagði blómið frá mér við endann á afgreiðslukassanum... og síðan þá hef ég ekki séð það... og eg borgaði ekki fyrir það... svo blessað blómið er líklega bara enn við afgreiðslukassann... blessuð sé minnig þess 8)

En já ég hef þessi orð ekki fleiri þennan daginn enda er ég að fara að draga ólöfu með mér í bakaríið við brúna núna... þar sem ég er glorsoltin og langar ekki í neitt annað að bakarríið við brúna og í próftíð á maður að láta allt svoleiðs eftir sér ;) enda er það farið að sjást á mér :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 22:00:07 / johanna

heimspekin búin

hellú hellú... ég er enn hress og kát enda 2 próf búin en að vísu eru 3 leiðindapróf eftir... heimspekin gekk bara mjög vel... spurningin er bara hvort að KK líki það... vona bara að hann verði í góðu skapi eftir londonferðina ;)
En ég ge svo svarið það að ég fann svo til í hendini á að þurfa að skirfa svona mikið.. úff... ég er ekki að ljúga því að hún var pínu bólgin :klikk: það tekur á að þurfa að skrifa svna mikið og hafa varla lift penna allan veturinn... fjandans tölvur...

En já annars gengur lífið bara sinn vana gang... humm... próf-próf-próf... er samt ekki að nenna þessu... langar að liggja í leti og þurfa ekki að hafa áhyggjur af neinu... en vöxtur og þroski á mánudaginn...hjúkrunarfræði á miðvikudaginn... líffærafræði á föstudaginn.... og svo jahh maður spyr sig8|


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 17:45:41 / johanna

haleluja...

vúhúúúúú..... fyrsta prófið er búið og ég er svo ánægð :haha:

hmmm... hef ekki hugmynd hvernig það gekk... allavega ekkert illa held ég 8)

en já verð nú að segja frá afreki helgar innar en ég ákvað að taka mér frí frá bókunum og skella mér á jólahlaðborð með nýju vinnunni hans svenna (Sportver), nenni þó ekki að vera langorð um það annað en að það var geggjað gaman, og starfsfólkið er allt geggjað hresst og já ég borðaði geggjað mikið....

en já... ættla að hangsa pínu, gera ekki neitt og borða og fara svo að læra fyrir heimspeki... sem er by the way á miðvikudaginn kl:14:00 :klikk:


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 11:01:21 / johanna

próffff....

obbobbobb... hef engann tíma til að blogga... vefja-og frumufræðipróf eftir 3 klukkutíma... svo gangi mér og líka þér vel :haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 19:34:13 / johanna

ekki sangjarnt

sko... ég eiginlega varð að létta aðeins á mér... þannig er mál með vexti að ég var í mesta sakleisi að dunda mér við að skoða og gera gömul próf í Líffærafræði... en viti menn... humm ég hef nú séð þessa spurningu áður... humm en það er eitthvað bogið við þetta... og jújú... ég hafði séð fjandans spurninguna í öðru prófi sem ég gerði fyrr í dag og allt í góðu með það... nánast sama spruningin, SÖMU 4 svarmöruleikarnir.... EN það er einn meigin kalli, önnur spurningin er

- hver eftirfarandi fullyrðinga varðandi bandvef er rétt?
                        og hin
- hver eftirfarandi fullyrðinga varðandi bandvef er EKKI rétt?

þetta gengur bara ekki upp!!!! :$

svo Siggi skamm... bannað að gera manni svona hluti rétt fyrir próf :evil:


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 09:10:58 / johanna

jamms kjamms og ekkert hamms eða hvað??

Ákvað að skella inn einni örstuttri færslu svona af því að ég er að prennta... jamms alltaf að prennta... þó er held ég allt að verða komið á A4 blöð...þoli ekki að lesa af tölvuskjá svona fyrir próf... það er svoerfitt að krassa yfir, kommnnta til hliðar og allskins hlutir sem maður vill gera á kjáinn... :haha:

En annars er nákvæmlega ekkert nýtt að frétta af mér... er bara að læra... og borða nammi... og læra... pínu glósa... borða... læra... ja og svo sjálfsögu sofa ógeðslega mikið... en fyrir þá sem ekki vita er það möst að vera farin að sofa klukkan 10 á kvöldin:!: og ekkert múður (nema á mánudögum... en fer ekkert nánar út í þá salma hér)

Annars er síðasti dagurinn hjá svenna í byggingavinnunni í dag og á morgun byrjar hann í Sportver 8)

En prenntarinn er að æla út úr sér síðasta blaðinu svo það síðir ekkert að hangsa mera.... anantomian bíður :|


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 15:26:13 / johanna

sjalalalala

Sko

  • ég er ekki farin yfir um...
  • ég er ekki að slóra, heldur að nýta tímann á meðan ég er að prennta...
  • ég er reyndar pínu stressuð... en bara pínu...allavega enþá...
  • ég tel að 5 dagar sé ekkert langur tími að mínu mati
  • ég var í síðata tímanum í gær...
  • OG ÞAÐ ERU BARA 6 DAGAR Í PRÓF

kv. Jóhanna


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 17:52:40 / johanna

obbobbobb

shit fokkins shitt.... 11 dagar í próf

en já by the way... herra ísland er í kvöl... ekki missa af strákunum dansa




 

» 4 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 07:52:27 / johanna

nýjir tímar

 já nokkuð rétt, prófin nálgast og ég er farin að blogga, það er bara einhvernvegin þannig að þegar maður er barin að stressast upp er ágætt að gera eitthvað allt annað í 5 mín ;) og þar kemur bloggið til sögunnar... en annars er ég bara komin með svo góðan blogg tíma inn í stundarskránna hjá mér... en það er einmitt núna :haha:

Sko... ég nefnilega er í átaki með það að snúsa ekki endalaust (sem og ég geri ef ég fæ eitthvað um málið að segja...) SVO snillingurinn ég ákvað að fara bara alltaf á fætur með Svenna og fá far með honum í skólan... og ekkert snús 8) að vísu þýðir það að ég er komin í skólann um hálf átta (og tíminn byrjar ekki fyrr en klukkan 8:10) en ég meina... hvað er betra en að chilla smá í nánast mannlausum skóla inn í tómri kennslustofu í ca. 30 min á mornanna, ekkert nema endurnærandi :haha:

En allavega.... ég blogga þá (á ókristinlegum tímum) og get læri enda veitir ekki af þar sem það eru bara nokkrir dagar í próf, nánar og ég á bara eftir að mæta 2x í skólann í viðbót:!:

13 dagar í próf


» 13 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 16:50:36 / johanna

ohh...(2)

Sko það er komið eitthvað nýtt netforrit í tölvuna og það leifir ekki copy og allt það nema að maður geri eitthvað fyrst... og ég nenni ekki að lesa um þetta eitthvað... svo eg nenni ekki að laga þetta...

Allavega hefndi mín um helgina og kom fyrir vírus í tölvuna hans Svenna (þess vegna virkar explorerinn ekki...) en eitt jákvætt leiddi af þessu... það var ekki hægt að bíða lengur, báðar tölvurnar í hreynsun ;) plús það að svo skemmtilega vildi til að kallin sem hreynsaði þær átti auka liklaborð á hp tölvu... hum hagstætt... svo æluborðið út og nothæft liklaborð inn 7000 kell og málið er dautt :haha: ohhh ég er svo ánægð 8)

en já var að átta mig á því áðan að það eru bara 14 dagar í próf...:klikk: ekki sátt... %$#"#$$# en já þessvegna er ég að fara að læra núna.

» 5 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 16:45:57 / johanna

ohh...

ohh... það er vesen að blogga

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 19:28:48 / johanna

allt fyrir þig Þórdís

hellú hellú vó 2 blogg á einum degi… kraftaverk gerast… enda er fösrudagur… og eg er að horfa á snilldar myndina Flashdanc...

Sko ég myndi segja eitthvað merkilegt... en vandamálið er að það gersit afskaplega lítið eitthvað hjá mér þessa dagana...

Hinn hefðbundni dagur þessa vikuna... vakna um 7...komin í skólann svona hálf átta... læri...borða...læri...borða...læri meira... og já klukkan er að verða 7 svo kvöldmatur... smá sjónvarp...shit klukkan er 10... háttatími *hrotur*

afskaplega spennandi ekki satt... svo verið þið bara fegin að ég blogga ekki á hverjum degi... þetta yrði frekar leiðigjarnt til lengdar ;)

 

 



hei ótrulegt en satt þá skellti ég mér út á lífið um síðustu helgi á Eirarkvöldið... frítt hvítvín... og ég var bara mynnir mig ekki neitt timbruð J ætli það hafi ekki bjargað mér að Baldur Már var á staðnum... hann kom mér heim um þrjú leitið...

 

 



skelli hér inn einni sætri mynd af okkur Magga... við myndumst nefnilega svo vel

 



 

 

og svo var þessi fallega unga ,,stúlka einnig að fylgja en hún skartaði sínu fegursta pússi á sprellmótinu



 



 

 

og í lokin ein púkarleg mynd



 



 

 

Smá skaðabætur þar sem allar myndirnar eru í ótengdu/dauðu tölvunni... nenni ekki að standa í myndafluttningi og veseni þar sem eg á að vera að læra... eða allavega að gera eitthvað annað...




» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5